Well smack my ass and call me Judy ;-D
Smáfólkið ;)
14.08.2007 19:13:52 / sarasig

Sommer time OVER...

 

Hæhó...Eins og mamma sagði alltaf þegar é g var lítil ;)

Doldið mikið langt síðan ég skrifaði seinast og er búin að vera á leiðinni mjög lengi en er bara sama sem ekkert búin að vera í tölvunni minni í allt sumar. Hefur meira verið hann Ingólfur sem er búinn að vera að tölvunördast í minni tölvu :D En ég bæti þetta allt upp þegar skólinn byrjar!!

Það er alltaf þannig...

ÉG var tekin af Helv! Selfoss löggunni fyrir ofhraðann akstur fyrir nokkrum vikum :( Veit að eflaust margir eru búnir að vera að bíða eftir þessu og meira að segja ég sjálf en samt er mjög leiðinlegt að lenda í þessu. En sem betur fer fékk ég engann punkt :D jeiii get enn fengið fullnaðarskirteni..

Bömmer sumarsins var samt sá að ég sat heima um verslunarmannahelgina útaf vinnu!!! Hef ALDREI án djóks verið á jafn miklum bömmer á æfinni eins og að hafa þurft að sleppa eyjum útaf GLITNI!!! Þannig að við Ingó fórum bara á fyllerí í Verahvergi (Hveragerði) með familíunni og drekktum sorgum okkar ;) hehehe Það var nú samt alls ekki leiðinlegt en það jafnast samt ekkert á við Þjóðhátíð í Eyjum og hana NÚ :P

 

Annars eru bara 5 dagar í að ég hætti að vinna og skólinn taki við..Sumarið alltof fljótt að líða! En núna 27 ágúst verð ég tvítug sem er ágætis tilhlökkunarefni  ;) Samt ekkert svaka spennó við það að komast á þrítugsaldurinn :/ hehe Og svo 2 sept fljúgum við Ingó í sólina á Lanzarote :D

Me LIKEEEE..

Þannig að það er bara eintóm hamingja framundan ;)

EN allervege þá er þetta sumar búið að vera yndislegt í alla staði...búin að fá mjög góða æfingu í ensku og gæti án djóks flutt til englands og talað eins og innfædd eftir að hafa þurft að tala enskuna í allt sumar  við aðra hverja manneskju sem steig fæti inní Glitni í Smáralind :D:$ hehe

En jæja farin að fá mér að spísa :P:haha:

Kveðjur 


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.06.2007 17:16:05 / sarasig

Í sól og sumari ég sat inni og vann!!

 

Síðustu daga er búið að vera brjálæðislega gott veður...Held að ég hafi spáð rétt um að þetta yrði besta sumar í mörg ár bara af því að ég er að vinna inni í sumar!

 

EN ég er hætt að nenna að spá í þessu og vona bara að þá daga sem ég er í fríi verði voða gott veður líka ;)

 

Ég hafði víst rangt fyrir mér varðandi fyrstu helgina í júlí um að ég væri að vinna...var aðeins að misskilja og hélt hún væri ekki núna um helgina heldur helgina eftir það..hmmm..þannig að það lítur út fyrir að ég verði í fríi eftir allt saman. Spurning samt hvort ég nenni að fara eitthvað eftir hremmingarnar sem við lentum í á bíladögum um daginn :/

 

Nenni lítið að fara út í það en við skulum allavega segja að við keyrðum tvisvar til AK og tvisvar til baka yfir þessa helgi, lentum í því að tjaldið okkar var eyðilagt og margt margt fleira :P

 

Eníhú...Það er DAUTT hérna í bankanum og verður alveg örugglega alveg þangað til um kl 5! Án djóks þá eru 40 manneskjur búnar að koma hingað gjaldkeramegin síðan við opnuðum kl 12:30!

 

Við Ingó erum að pæla í að skella okkur til Lanzarote í haust og sleikja sólina í viku eitthvað svoleiðis :D Verð að komast eitthvað smá út í sólina í frí ;) Spurning samt hvort það eigi ekki eftir að koma niðrá skólanum og gamlan var ekkert svakalega sátt með þetta en ég VERÐ að fara eitthvað!

 

Ein svona pæling í lokin...Frá og með 1.júlí verður einkadansinn bannaður...Er þetta ekki öfug þróun?? Fyrr á árinu var vændi löglegt og núna er verið að banna einkadansinn! Mér finnst að þetta ætti akkurat að vera öfugt..EN hvað veit ég ?? ;)

 

Hilsen ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.06.2007 14:43:48 / sarasig

Well Hellóóóóó ;)

Já eins og flestir landsmenn vita er brjálað gott veður úti þessa stundina...og þá er ég í vinnunni!! Núna er þessi tilfinning sem margir voru búnir að vara mig við að ég ætti eftir að finna fyrir þegar maður byrjar að vinna inni á sumrin virkilega byrjuð að láta sjá sig... 

Þessi tilfinning er VÆGAST sagt hræðileg :(

 

Langar svoooo að vera úti að vinna og hafa það gott í sólinni...Er að deyja!

 

Enda ekkert skrítið er búin að vera úti að vinna öll mín sumur síðan ég byrjaði minn vinnuferil...Þetta er pínu skrítið :P

 

EN að öðru ;)

 

BÍLADAGAR!!!

 

Við Ingó erum með snilldar plan fyrir bíladaga ;) Við erum að pæla í að fara norður á sendibílnum hans og sofa í bílnum!!! :D  hahahha Pjattrófann hann kallinn minn vill helst ekki vera á tjaldstæði útaf þá er fullt fólk að pissa og æla á tjaldið og honum finnst Mazdan hans ekki vera öruggur á einhverju bílastæði svo þetta er allavega besta hugmynd sem okkur hefur dottið í hug hingað til ;) Veit ekki hvort þetta plan eigi eftir að haldast, kemur í ljós ;)

Væri samt best að fá fellihýsið hjá foreldrum hans lánað en málið er að okkur vantar bíl með krók til að draga það :S

 

Jæja vinnan kallar ( ekki það að það er EKKERT að gera hérna, eflaust allir í Nauthólsvík eða í sundi að sóla sig) urr!!!!:evil:

 

Sara Bitra kveður ;) híhí


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.06.2007 12:59:49 / sarasig

Jæja loksins gefst smá tími til þess að blogga ;)

Frí í vinnuni í dag þannig að ég get loksins sest niður við tölvuna án þess að vera að drífa mig að gera eitthvað annað !

Ætla svoleiðis að njóta þess að vera í fríi í dag og á morgun og gera bara það sem mig langar til :D
Var að koma úr sturtu og líður ótrúlega vel…Ætla að fara að hitta Sillu eftir smá stund sem hefur ekki gerst í of langann tíma…Bara í lagi!!

Pælingin um 17 júní helgina er að fara á Bíladaga á Akureyri :D Hlakka til enda alveg MARGIR mánuðir síðan ég hef látið sjá mig þar fyrir norðan…Búið að setja á mig frídag í vinnunni á föstudeginum þannig að við Ingólfur minn erum að pæla í að fara á fimmtudeginum, enda ekkert grín að fara í föstudagstraffíkinni…Vona að sem flestir fjölmenni fyrir norðan svo það verði sem skemmtilegast ;)

EN að allt öðru… þar sem ég er að vinna í smáralind þá er opið um helgar í bankanum þannig að maður verður víst að sætta sig við að vera að vinna um verslunarmannahelgina og um fyrstu helgina í Júlí!! Týpískt að ég hafi akkurat lent á þessum helgum í vinnu, mestu ferðamannahelgar ársins :( Ég verð að viðurkenna að ég er pínu fúl!
En jæja ég ætla að fara að slétta á mér toppinn og drífa mig út úr húsi ;) Eigiði góðann dag :D

» 3 hafa sagt sína skoðun

25.05.2007 18:30:56 / sarasig

Long time NO blogg :/

Er ekki búin að vera að standa mig í þessu sko!

 

Margt og mikið búið að gerast síðan seinast....

Til dæmis

 

*Skólinn búinn!! Bara í lagi ;):D

 

*Ég er byrjuð að vinna í banka...Glitni Smáralind :P Ótrúlega ánægð með þetta bara.

(Samt soldið pirrandi að geta ekki verið í hvaða fötum sem manni langar til) Pirró Dresskód!!

 

*Rosalega freistandi að vinna í Smáralind!!! Að reyna að fara ekki í búðirnar og kaupa sér eitthvað er MJÖG erfitt! Sérstaklega þar sem það er eitthvað minna um peninga í minni eigu akkurat þessa stundina :/

 

*”Sumarið” sem á víst að vera komið núna um þessar mundir hefur ekkert verið að láta sjá sig!! Hélt ég yrði ekki eldri þegar ég varð vör við snjókomu hérna í vikunni!

 

*Langar til útlanda!!

 

*Fór á American Style um daginn (kemur á óvart, þar sem ég er búin að lifa á skyndibita eftir að ég byrjaði með Ingó;)) Allavega mér finnst sinnepssósan sem er á hamborgurunum þar alveg VIÐBJÓÐUR þannig að ég bað um að láta taka hana af og bað um hamborgarasósu í staðinn..EN hvað haldiði???

Á American style er ekki hægt að fá hamborgarasósu!! Finnst ykkur þetta hægt?? No hamborgarasósa á hamborgarastað!!??

 

Hehe en Jæja ákvað að láta aðeins í mér heyra :=)


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.04.2007 14:19:01 / sarasig

Síðasti vetrardagur=Seinasti séns fyrir þennan kuldabola að fara!!

Já því á morgun en fyrsti dagur sumars og á þá ekki að koma þvílíkur hiti og sól??

nei því miður á það ekki eftir að gerast því við búum á Íslandi :(;):P

ég er urrandi brjáluð yfir þessum kulda…sýnist vera rosa gott veður þegar maður er inni og svo bara þegar maður kemur út þá frýs maður inn að beini! Eða er það kanski bara afþví ég fór svo illa klædd út??

Gæti verið…

Á morgun er ég að fara á Leg, leikritið umtalaða eftir Hugleik Dagsson…Hef miklar væntingar til þessa leikrits enda bara búin að heyra góða hluti um það ;) útvarpsauglýsingin “er ég mjómjó eða mjómjómjó” vakti alla mína athyggli :P Pínu mikil snilld…

Jæja kanski maður ætti að fara að fylgjast með í frönskutíma…Ekki alveg mitt sterkasta fag og þarf virkilega að fylgjast með ;)

Bleds

» 4 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 20:56:51 / sarasig

Mánudagur til mikillar gleði..

…Ekki mæðu ;) er ekki hægt að vera með “mæðu” á svona góðum degi, sól og allt eitthvað svo sumarlegt og glaðlegt.

Eníhú, 2 vikur síðan endajaxlarnir voru teknir og ennþá er mér illt í kjálkanum og get ekki opnað munninn alveg upp á gátt :(
Er þetta eðlilegt???? Maður spyr sig…Hef ekki enn hitt manneskju sem var svona illt lengi eftir svona aðgerð. Ef þið vitið um eikkurn endilega látið mig vita með e-maili :P hehe

Var að vinna um helgina, voða gaman…Brosti mínu breiðasta samt þegar ég var búin að vinna í gær, alltaf svo gott að vera búinn með vinnuhelgina :D

Ingó pantaði bústað um næstu helgi, erum enn að ákveða hvort við eigum að fara bara tvö eða hvort við eigum að taka eitthvað lið með okkur?? Spurning..Væri eiginlega bæði gaman.

Meðan ég man…þá vill ég óska henni Sillunni minni til hamingju með afmælið í gær og líka Sölva bróðir sem er komin á táninga-aldurinn en hann varð 13 ára í gær :D hahah finnst ótrúlegt að litli bróðir minn sé orðinn 13 ára!! Finnst eins og hann sé nýorðinn 6 ára eða eitthvað ;) OG það að hann sé orðinn svona gamall þýðir aðeins eitt og það er að ég er orðin alveg ótrúlega GÖMUL…Vá finnst þetta svo skrítið :P

Jæja ég held ég segi þetta bara gott í bili…er farin að lesa smásögu eftir Þorstein Guðmundsson :D hehehe það lofar góðu miðað við alla snilldina sem hann hefur gert í gegnum tíðina, til að nefna dæmi
*Lýður Oddsson hinn frægi lottóvinningshafi (hann skrifar handritin) ;)
*og svo auðvitað hinar frægu námsmannaauglýsingar :D
*og ekki má gleyma hinum frábæru Fóstbræðraþáttum :P

Ég hef oft pælt í því afhverju í ósköpunum það er ekki búið að gefa fóstbræður út á DVD…Meina það eru bara steinaldarmenn sem eiga ennþá video og ekki er hægt að horfa á gömlu spólurnar með þessum snillingum nema eiga eitt svoleiðis tæki. EN NEI…það hefur enginn snillingur enn fattað að gefa þessa þætti út á DVD, ég er að segja ykkur að það myndi seljast í bílförmum :D:D
Síðan datt ég bara rétt áðan inná undirskriftalista á netinu þar sem fólk vill fá fóstbræður gefið út á DVD, LOKSINS :D

Endilega skrifiði ykkur á þennan lista ef ykkur finnst þeir fyndnir, ef ekki þá eruði ekki með húmor í lagi ;) hehe

http://www.katrin.is/fostbraedur/

Jæja æm ádí :P

» 4 hafa sagt sína skoðun

05.04.2007 15:09:39 / sarasig

Endajaxlataka=helvíti á jörðu!!!!!

Og ég er ekkert að grínast :S

Ég skellti mér í eitt stykki svoleiðis aðgerð á mánudaginn…fór í þetta með bjartsýnu hugarfari EN varð fyrir þvílíkum vonbrigðum!! (ekki það að ég hafi verið að búast við að þetta væri eitthvað þægilegt)
En okay fór til tannsa kl hálf 2, heyri síðan nafnið mitt kallað rétt rúmlega hálf og fór inn með hjartað á MILLJÓN! Erum að tala um að ég var ógeðslega stressuð…Allavega þá sprautar tannsi í mig “smá” deyfingu, hann var ekkert að spara deyfinguna á mig og sprautar hvorki meira né minna 12 sinnum í mig!!! Og ég var bara að láta taka jaxlana niðri…þetta byrjaði ekkert svakalega vel allavega.

Til að gera langa sögu stutta þá þurfti að brjóta annan jaxlinn niður í þrjá parta og tók alveg hálftíma og síðan var hinn rifinn úr á svona 2 mín!!

Úff og ég var dofin af deyfingunni til kl 7 !!

Og síðan er ég búin að lifa á verkjalyfjum og fljótandi fæði í 4 daga og ég er að verða GEÐBILUÐ :( Sunna mikið vorkenni ég þér að hafa þurft að vera á fljótandi í mánuð!! Það er sko ekki mikið fæðuúrval ef maður má bara borða fljótandi …

Og í kvöld ætla ég að kíka í matarboð hjá pabba þar sem hann ætlar að elda uppáhaldsmatinn minn lambafille og það verður fullt af fólki og ég þarf að borða súpu :( Nenniði plís að vorkenna mér ;) heheh

Jæja ég er hætt að væla :P

Á morgun er ég síðan að fara í kaffiboð heim til Ingó :) Með fullt af kökum og ég get ekkert borðað :D hahhahah OK núna er ég hætt!

Jæja mig langaði bara að henda inn nokkrum línum og leyfa ykkur að vita hvernig ég eyði páskafríinu mínu og ég vona að þið hafið það aðeins betra en ég :D


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.03.2007 22:15:36 / sarasig

Sælar skvís ;)

Hæ...

Ég hef eiginlega ekkert að segja núna...Nenni bara ekki að læra og er búin að vera að nördast á myspce í langann tíma og hef ekkert meira að gera þar..Þannig að ég ákvað að koma með eitt blogg hérna inná, langt síðan seinast ;)

Það sem hefur gerst á síðustu dögum er þetta:

*Ég og Ingó gerðumst "málarameistarar" og slettum málingu á herbergið mitt :P Það var nú ekki betur gert en það að við gleymdum að mála smá part af herbeginu!! hehehe en það er ekki mjög áberandi og klárum við þetta við betri tíma.

*Fengum nýtt rúm sem tekur næstum allt herbegið (enda ekki stórt herbergi þar á ferð)

*Skólinn búinn að ganga sinn vanagang (bæ ðe vei rétt rúmar 3 vikur og svo próf!! Fokk:S)

Annars vorum við Ingó að spá í að skella okkur norður til Akureyrar um helgina þar sem kallinn var að kaupa sér nýjan bíl :D Hlakka endalaust til að hitta Sindra og Einsa ef við förum ;)

jæja minns er fain :P

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 17:19:15 / sarasig

Jökk!!

Já ég get sko með sanni sagt að ég er í SJOKKI!!
 
Var í sálfræðitíma áðan og kennarinn sýnir okkur myndband. En þetta var ekkert venjulegt myndband, þetta var ÓGEÐIS myndband:$  
Já hann sýndi okkur konu sem var að fæða barn!!!
 
Allavega...Þá var þetta kona sem leyfði að mynda sig í heila 9 mánuði og sýna alveg nákvæmlega hvernig líkami konunnar breytist á þessum tíma sem þær eru óléttar.
 
og úfff!! Þetta var ógeðslegt 8|
 
Að konur skuli þurfa að leggja allt þetta á sig!
Ég held að mín löngun til að eignast barn sé FARIN ;) hehe
 
og ef þú ert í barneignahugleiðingum þá mæli ég ekki með þessu myndbandi :D:$ 
 
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------
 
Annars er ég að fara að mála herbergið mitt um helgina og fá risastórt queen-size rúm :D
Var orðið frekar þröngt í mínu litla fyrir bæði mig og Ingó! Líka kanski kominn tími til að breyta aðeins til ;)
 
Annars lítið annað planað yfir helgina en lærdómur...er komin eitthvað svo hræðilega langt aftur úr í öllu sem er ekki gott mál :^) 
 
En ég held ég segi bara góða helgi og hafiði það gott ;) 
 

» 5 hafa sagt sína skoðun

27.02.2007 17:08:52 / sarasig

Ljúfir tímar framundan…

Þemadagar næstu tvo daga í skólanum og ég þarf bara að mæta á morgun :D Ekki það að ég hafi ekki þurft að gjalda fyrir það..Þurfti að fara með íslensku 503 í leikhús á sunnudagskvöldið, á án efa það leiðinlegasta leikrit sem ég hef nokkurn tíman sér!! Þetta er bara það leiðinlegasta sem ég hef þurft að eyða tímanum mínum í ! öllu gríni sleppt!!

En þetta leikrit heitir Dagur vonar og mæli ég ekki með því nema þú sért í sjálfsmorðshugleiðingum ;)

Þannig að á fimmtudaginn og föstudaginn get ég sofið út :D Bara ljúft…

Í kvöld er ég síðan að fara yfir heiði til Hveró :P Ætla að fara burt úr geðveiki heimilis míns í rólegheitin heima hjá Ingó :D

En ég ætlaði nú bara að láta ykkur vita að ég lét undan og fékk mér eitt stykki myspace :D heheh Eða varð allavega virkur notandi í þessu ;)
Mjög gaman verð ég að segja…

Linkurinn inná mína síðu er www.myspace.com/saras87 ;)

Sara

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.02.2007 11:23:13 / sarasig

Jæja tölvubanninu aflétt ;)

Er farin að mæta aftur í skólann með tölvuna mína EN í gær var fyrsti dagurinn sem ég mætti með hana á þessari önn :P

Trúi samt ekki að þetta hafi enst svona lengi :D

Síðan komst Borgó í úrslit í morfís í gær !!!!!
BARA snilld sko ;):P:D Þannig að allir að sameinast í Háskólabíó þann 16. Mars þar sem Borgó skal vinna MH :D


100% mæting í skólanum aðra vikuna í röð!!;)
Ég held að þetta hafi bara ekki gerst síðan á fyrstu önninni minni í skólanum(og þá fékk ég 1 einingu fyrir góða mætingu:D) heheheh

Er samt að pæla í að taka þetta myspace til endurskoðunar (fyrst marr er nú farin að mæta með tölvuna aftur í skólann og á pott þétt ekkert eftir að gera annað en að hanga á netinu) :P

Hilsen!

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.02.2007 20:45:41 / sarasig

Jahá “nýjasta” net-ÆÐIÐ = MySpace

Ég get alveg sagt ykkur það að ef þú átt ekki myspace þá ertu Unkúl!

Ég veit ekki alveg hvort ég eigi að teljast með kúl fólkinu eða ekki í sambandi við þetta.

Ég get sagt ykkur, að ég á myspace………

……EN!!!! Ég bara nota þetta EKKERT, kann ekkert á þetta, svona ár síðan ég stofnaði síðuna mína en hef bara 3x farið inná hana.
OG í öll skiptin BARA til að skoða myndir hjá öðru fólki sem er virkt í þessum myspace heimi :)

Síðan…ef þú talar við eikkurn sem þú þekkir og myspace kemur upp í umræðuna, þá geturu næstum því bókað það að manneskjan eigi svona síðu….Vegna þess að mér finnst eikkurnvegin ALLIR vera virkir í þessu….Nema ég???

Þannig að ég er búin að vera að velta fyrir mér hvort ég eigi að fara að taka þetta aðeins í endurskoðun og gerast virkur í þessu…Bara svona til að fylgja tískubylgjunni??

Neeeeeiiii ég veit ekki með þetta :S;):P:S

Kanski ágætt að vera svolítið öðruvísi stundum?!?

» 5 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 14:32:21 / sarasig

Sex, Drugs and rock&roll :P Újéé

Hello my litle ones :D

Í síðustu viku gerðist svolítið MJÖG merkilegt…Ég, Sara Sigurjónsdóttir, var með 100% mætingu alla vikuna í skólanum ;):D OG ég lærði heima!! Þetta er nottlega bara svo ótrúlegt að ég næstum trúi ekki sjálf að þetta sé satt. En jújú ég er bara ekkert að ljúga að ykkur :D Minns er nottlega orðin svo dugleg.

Lærði fyrir íslensku próf og las smá brot úr Alþýðubókinni eftir Halldór Laxness…Gat ekki annað en hlegið þegar hann var að skrifa að íslendingar væru svo sóðalegir og að við ætum að fara í bað á hverjum degi( takið eftir að þetta er skrifað 1929 þegar það tíðkaðist á íslandi að fara bara í bað kanski einu sinni í viku eða eitthvað þannig) OG honum fannst að það ætti að breyta bara Faðir vorinu og hafa það “daglegt bað” í staði fyrir “daglegt brauð” hehehehe :D

En jæja kanski er ég bara með svona aulahúmor ;)

Annars er kominn mánudagur og helgin að baki…Pabbi var með smá mataboð á laugardaginn og bauð mér, Ingó, Sindra bróðir og Jóni frænda í ekkert smá góðann mat og geggjaðan eftirrétt :D Gerði nú ekki mikið meira en það þessa helgina fyrir utan að vinna.

En að allt öðru! Fyrir nákvæmlega 2 vikum fór ég í klippingu og litun. Ekki nóg með það að hafa setið í leiðindar 3 tíma í klippistólnum og borgað 16.500 kall fyrir þetta(reyndar með sjampó og næringu en samt) þá fer ég að taka eftir því fyrir helgi að það er bara eins og liturinn í hárinu sé að renna úr!!! Ég er ekki að grínast sko, það er bara næstum því eins og ég hafi bara ekkert farið og látið lita hárið :( OG ég þessi feimna trítla ÞORI ekki að hringja og spurja hvort þetta sé eðlilegt!!! Ohhh ég er svo mikill AULI :S En ég er massíft pirruð og langar helst að taka rakvélina heima hjá pabba og snoða mig!!

Jæja ég ætla að fara að koma mér aftur í skólann og sitja þar þangað til kl hálf 6!! Úff hvað ég nenni þessu ekki, en ég stefni í aðra 100% mætingarviku núna :D

En ég GET, ÆTLA og SKAL ;)

Eigiði góðan dag :*

» 5 hafa sagt sína skoðun

13.02.2007 00:37:28 / sarasig

Black And White ;)

Þá er afmælinu hans Steinars lokið og ég verð nú bara að segja að þetta var eitt SNILLDAR partý og ég held barasta að ALLIR hafi skemmt sér mjög vel :D Allavega gerði ég það!

 Byrjuðum á því að mæta fyrr ég, Silla, Gunni og Sindri S og við borðuðum saman. Var nú reyndar ekki mikið borðað, vegna stress hjá sumum og spennings hjá öðrum ;) Síðan um 9 leytið byrjaði fólkið að streyma og var stöðugt steymi fram eftir kvöldi…

 

Þemað var Black and White, og var mjög gaman hvað það voru margir sem mættu samkvæmt því :D Nokkrir svartið sauðir sem brutu samt dress coad-ið :)

 

Við Gunni áttum síðan dansgólfið þegar líða tók á kvöldið og ég var svo búin á því eftir allan dansinn að ég var kominn inn í bíl hjá kallinum mínum um svona 1 leytið :P (vill líka bara nefna það að ég var enginn ofurölvi þetta kvöldið eins og seinast :D;)) ég er svo farsæll drykkjumaður eins og hann Jón frændi myndi segja :D hehehe

 

Ætlaði nú samt bara að segja ykkur að ég er búin að setja myndirnar inn en ég var ansi dugleg og tók næstum 200 myndir! :D Enjoy…Þær eru neðst undir myndir 2007.

 

 

Góða nótt :*


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 19
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 14 janúar